Blikkrás er Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026! 🎉
Blikkrás hefur hlotið viðurkenninguna Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2026. Við erum afar stolt af þessum áfanga, sem endurspeglar traustan rekstur, fagleg vinnubrögð og þann góða grunn sem hefur verið byggður upp hjá fyrirtækinu í gegnum árin.
Viðurkenningin er okkur mikil hvatning og staðfesting á því góða starfi sem unnið er á hverjum degi. Árangurinn byggir fyrst og fremst á öflugu starfsfólki, góðu samstarfi og því trausti sem viðskiptavinir okkar hafa sýnt okkur.
Blikkrás fagnar 40 ára starfsafmæli árið 2026. Frá stofnun fyrirtækisins árið 1986 hefur starfsemin vaxið og þróast, en áherslan á fagmennsku, vönduð vinnubrögð og persónulega þjónustu hefur ávallt verið í fyrirrúmi.
Starfsemi Blikkrásar nær í dag yfir blikksmíði, stálsmíði, loftræstikerfi, þjónustu og viðhald loftræstikerfa ásamt hreinsun loftræstikerfa. Fyrirtækið er með höfuðstöðvar á Akureyri en sinnir fjölbreyttum verkefnum um allt land.
Við viljum þakka starfsfólki okkar, viðskiptavinum og samstarfsaðilum kærlega fyrir þeirra þátt í árangrinum. Við horfum björtum augum til framtíðar og hlökkum til að halda áfram að veita vandaðar lausnir og góða þjónustu.


Comments