Blikkrás ehf

Hlutverk Hlutverk fyrirtækisins er öll almenn blikksmíði og að hanna og framleiða loftræstikerfi auk annarra tilfallandi verkefna. Gæðastefna: Að vera

Stefna

Hlutverk

Hlutverk fyrirtækisins er öll almenn blikksmíði og að hanna og framleiða loftræstikerfi auk annarra tilfallandi verkefna.

Gæðastefna:

  • Að vera arðbært fyrirtæki þar sem skipulag, fagmennska og snyrtimennska er í fyrirrúmi.
  • Það er stefna fyrirtækisins að vera leiðandi fyrirtæki í að framleiða og selja loftræstikerfi sem uppfylla þarfir og kröfur verkaupa hverju sinni.
  • Vera ávalt í forystu með að tileinka sér tækninýjungar og fagleg vinnubrögð.
  • Að rýna og uppfylla kröfur kaupenda til vöru og þjónustu á markvissan hátt með því að beita gæðastjórnun í anda ISO 9001.
  • Að skapa eftirsóttan vinnustað með góðan aðbúnað, öruggt starfsumhverfi og laun yfir meðallagi á markaðinum.
  • Að starfsmönnunum líði vel í vinnunni
  • Að vera fjölskylduvænt fyrirtæki þar sem jafnrétti til launa og atvinnu er í öndvegi, óháð kyni, litarhafti eða þjóðerni.

Markmið:

  • Markmið fyrirtækisins er að skila hagnaði yfir 3% af veltu.
  • Öll aðstaða utandyra sem innan skal vera hrein og snyrtileg.
  • Stjórnendur og starfsmenn fylgist með og tileinki sér helstu nýjungar í hönnun, þróun og vinnubrögðum á hverjum tíma.
  • Tryggja eftirsóttan vinnustað með starfsmannaveltu undir 10% á næsta ári.
  • Greiða laun sem eru í samræmi við afkomu fyrirtækisins á hverjum tíma.
  • Standast D-úttekt á gæðakerfinu ekki síðar en árið 2006.
  • Að ímynd fyrirtækisins út á við sé jákvæð.

Aðgerðaráætlun:

  • Halda áfram innleiðingu á gæðastjórnun í samvinnu við SI.
  • fylgjast vel með tækninýjungum og framförum í faginu.
  • gera skriflegar staðfestingar á samskiptum á milli viðskiptavinar og fyrirtækis.
  • bæta framleiðsluskipulagningu þannig að mat á uppgefnum afgreiðslutíma verði ávalt rétt.
  • gera úttekt á umgengni, aðbúnaði og vinnuaðstöðu, fyrsta virkan dag í júlí ár hvert.
  • gera eigin úttekt á öryggismálum tvisvar á ári, fyrsta virkan dag í janúar og júlí.
  • Gera starfsmönnum kleift að sækja a.m.k. eitt námskeið á ári

Þetta krefst þess að allir starfsmenn séu jákvæðir, taki afstöðu með kerfinu og vinni samviskusamlega eftir þeim leiðbeiningum sem gefnar eru og tryggi þannig skilvirka stjórnun og árangur.

Framkvæmdastjóri

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.13 2009 - Stefna ehf